

Lagerstarfsmaður
Rými óskar eftir að ráða starfsmann á lager. Leitað er að skipulögðum, sjálfstæðum og líkamlega hraustum einstaklingi með góða samskiptahæfni. Lagerinn er staðsettur á Gylfaflöt 2-4, 112 Reykjavík.
Rými ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi frá árinu 1936. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur starfsfólks með áratuga reynslu af ráðgjöf, hönnun, þjónustu og uppsetningum á sviðum verslunarinnréttinga, lagerbúnaðar, skjalageymslutækni og búnaði fyrir iðnað, verkstæði, sveitarfélög og opinberar stofnanir.
Helstu verkefni:
- Vörumóttaka og frágangur á vörum
- Tiltekt pantana
- Þrif og frágangur í vöruhúsi
- Tilfallandi samsetningar á vörum fyrir afhendingu
- Önnur almenn lagerstörf
Hæfniskröfur:
- Gott líkamlegt atgervi
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Skipulagshæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Vinnuvélaréttindi kostur
Um fullt starf er að ræða og er vinnutími frá kl. 08:30-16:30 alla virka daga.
Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2025, en unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Birna Dís Bergsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.












