
Lágafellsskóli
Lágafellsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10.bekk. Nemendafjöldi er um 580.
Unnið er í anda uppbyggingarstefnunnar þar sem meigináhersla er lögð á að byggja upp sjálfstraust og sjálfsstjórn nemenda ásamt því að leiðbeina nemandanum til að verða sá sem hann vill verða.
Að kennslu lokinni gefst nemendum 1.-4. bekkjar kostur á lengdri viðveru í Frístund sem starfrækt er innan skólans. Frístund Lágafellsskóla er mjög vel sótt og eru þar um 160 nemendur við leik og skipulagða klúbbastarfsemi daglega.
Lágafellsskóli stendur við Lækjarhlíð 1 Mosfellsbæ. Bólið, félagsmiðstöð nemenda í 5.-10.bekk stendur á lóð skólans.
Skólinn samanstendur af öflugu starfsfólki sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum. Fjöldi starfsmanna er um 100.

Lágafellsskóli - umsjónarkennari á yngsta og miðstigi
Lágafellsskóli leitar að áhugasömum umsjónarkennurum á yngsta og miðstigi
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar.
Um er að ræða tímabundnar ráðningar til 31.07.2027 í 80-100% starfshlutfalli við umsjónarkennslu á yngsta stigi eða miðstigi. Ráðið er í stöðurnar frá 1.ágúst 2026.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara með áherslu á grunnskóla
- Mjög góð íslenskukunnátta eða sem samsvarar C1 í Evrópska tungumálarammanum
- Vilji og hæfni til teymisvinnu með öðrum kennurum
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi
- Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lækjarhlíð 1, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðKennariKennslaMannleg samskipti
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennari óskast á miðstig í Snælandsskóla
Snælandsskóli

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Leikskólakennari óskast
Sveitarfélagið Strandabyggð

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Garðabæ, Vífilsstöðum - Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Hjallastefnan

Vegna forfalla óskast kennarar til starfa við Djúpavogsskóla
Djúpavogsskóli

Mýrarhúsaskóli auglýsir þrjár stöður.
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennari - leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Leikskólinn Naustatjörn: starfsmaður í leikskóla
Akureyri