

Umsjónarkennarar á yngsta stig Lágafellsskóla
Við leitum að áhugasömum umsjónarkennurum til starfa á yngsta stig skólans.
Annars vegar er um að ræða fullt starf og hins vegar 80% starfshlutfall. Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst.
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum? Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi, ásamt leikskóladeildum fjögurra og fimm ára barna.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Leyfisbréf grunnskólakennara
• Vilji og hæfni til teymisvinnu með öðrum kennurum
• Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
• Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi
• Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
• Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
• Góð íslenskukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2019.
Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 5259200/8968230. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.

