Listahátíð í Reykjavík
Listahátíð í Reykjavík

Kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík

Listahátíð í Reykjavík leitar að öflum og hugmyndaríkum kynningarstjóra.

Kynningarstjóri vinnur í nánu samstarfi við listrænan stjórnanda að ásýnd hátíðarinnar og almennri kynningu.

Í starfinu felast töluverð textaskrif bæði á íslensku og ensku og því er algert skilyrði að viðkomandi hafi afburða gott vald á slíkum skrifum.

Listahátíð býður uppá fjölbreytt, sveigjanlegt og líflegt starfsumhverfi þar sem hæfileikar hvers og eins í teyminu fá notið sín. Við leitum að metnaðarfullri starfsmanneskju sem hefur brennandi áhuga á menningu og listum, hefur reynslu af kynningu og markaðssetningu menningarviðburða, einstaka samskiptahæfileika og nýtur þess að vinna með öðrum að stórum verkefnum.

Starfstímabil kynningarstjóra er frá 1. október 2021 til 30. júní 2022.

Listahátíð í Reykjavík fer næst fram 1.-19. júní 2022.

Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla og menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af markaðssetningu menningarviðburða.
Einstaklega gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Frumkvæði og útsjónarsemi í kynningarmálum.
Þekking á notkun helstu samfélagsmiðla.
Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt hugarfar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ritstjórn kynningarrits og heimasíðu.
Markhópagreining, kynningaráætlun og framkvæmd hennar.
Samskipti við fjölmiðla.
Samskipti við hönnuði og auglýsingamiðla.
Yfirumsjón með samfélagsmiðlum Listahátíðar.
Auglýsing birt18. ágúst 2021
Umsóknarfrestur15. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lækjargata 3, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Textagerð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar