

Kvöldvinna við afgreiðslu og þrif.
RVK MMA leitar að starfsmanni í kvöld- og helgarvinnu
RVK MMA leitar að áreiðanlegum og samviskusömum starfsmanni til starfa í kvöld- og helgarvinnu. Starfið felst meðal annars í afgreiðslu, almennri þjónustu við gesti og þrifum í húsnæði félagsins.
Við leitum að einstaklingi sem:
-
Er ábyrgur og stundvís
-
Getur unnið sjálfstætt og fylgt verklagi
-
Er jákvæður og þjónustulundaður
Starfið hentar vel fyrir skólafólk eða einstaklinga sem leita að hlutastarfi með námi eða annarri vinnu.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband og senda stutta umsókn á [email protected]
Helstu verkefni eru afgreiðsla í verslun og aðstoð við viðskiptavini ásamt daglegum þrifum.
Meðmæli úr fyrra starfi kostur.
Reynsla af vinnumarkaði skylda.
Samskiptahæfileikar og þjónusutulund.
Almenn tölvukunnátta æskileg.
Starfsmenn fá fullan aðgang að aðstöðu RVK MMA til líkamsræktar.











