
Fullt starf hjá Gæludýr.is á AKUREYRI
Gæludýr.is þarf að bæta í starfsmannahóp sinn. Óskað er eftir starfsmanni í fullt starf í verslun okkar á Akureyri. Um er að ræða framtíðarstarf. Vinnutími er virka daga 10-18 og annar hver laugardagur 11-16:30.
Hjá Gæludýr.is vinnur skemmtilegur og samhentur hópur starfsfólks sem öll eiga það sameiginlegt að vera miklir dýravinir.
Við leitum að dýravinum, samviskusömum, vinnusömum, stundvísum, hressum einstaklingum sem vilja slást í hópinn. Mikill kostur ef viðkomandi hefur reynslu af verslunarstörfum og þekkingu á dýrum.
Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri og með góða íslenskukunnáttu.
Áhugasöm sendi okkur umsókn hér í umsóknarkerfinu ásamt ferilskrá með öllum almennum upplýsingum, auk upplýsinga um fyrri störf. Þá þarf að koma fram reynslu og þekking umsækjanda á gæludýrum.
Afgreiða í verslun, veita ráðgjöf til viðskiptavina, lagervinna, áfyllingar, ræstingar og annað tilfallandi.
- Stundvísi
- Frumkvæði
- Jákvæðni
- Íslenskukunnátta
- 20 ára og eldri
- Þekking af verslunarstörfum er kostur
- Þekking af dýrahaldi er kostur
Íslenska










