

Krakkakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starf
Krakkakot er sex deilda leikskóli og er hann staðsettur á Álftanesi/Garðabæ. Uppeldis og agastefna skólans er "Uppeldi til ábyrgðar". Helsta náms og þroskaleið barna er hinn frjálsi og sjálfssprottni leikur og er leiknum gefið mikið rými í dagskipulagi skólans. Skólinn er hlýlegur og er lögð mikil áhersla á heimilislegt umhverfi og kærleiksrík samskipti sem einkennast af virðingu fyrir börnum, starfsfólki og foreldrum.
Leiðarljós leikskólans eru: Öryggi, Gleði, Jákvæðni, Virðing.
Í Garðabæ geta starfsmenn sótt um styrk í þróunarsjóð og er markmið hans að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi í leikskólum Garðabæjar.
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
- 0,25% stöðugildi vegna snemmtækra íhlutunar inn á hverri deild.
- Opnunartími leikskólans er 7:30-16.30 mánud-fimmtud og 7:30-16:00 á föstudögum.
- Fimm skipulagsdagar á ári.
- Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk.












