
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Leiðbeinandi á smíðavelli
Leiðbeinandi óskast á smíðavöll í sumar
Smíðavöllur er kofabyggð fyrir unga smiði á aldrinum 9 til 12 ára. Smíðavöllur er opin frá kl. 10:00 – 15:00 virka daga á meðan á námskeiðinu stendur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka og leiðsögn í hópastarfi á vettvangi.
- Stuðlað að jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum við börnin.
- Undirbúningur og frágangur í upphafi /lok hvers dags.
- Næsti yfirmaður er forstöðumaður námskeiðsins.
Hæfniskröfur
- Æskilegt er að starfsmaðurinn hafi reynslu af starfi með börnum, búi yfir umburðalyndi, skilning, leikgleði og jákvæðri hvatningu.
- Starfsmaðurinn sýni frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og veiti stuðning þegar þannig aðstæður koma upp.
- Umsækjendur skulu vera 20 ára og eldri.
Frekari upplýsingar um vinnutíma
Vinnutími er frá kl. 08:00 - 16:00 eða 09:00 -17:00.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Kópavogsbæjar og Starfsmannafélags Kópavogs.
Starfshlutfall er 100%.
Starfstími er í 3. júní – 10. júlí.
Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Pálmason s. 696-1621 og Guðrún Svava Baldursdóttir s. 696-1624
Eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningarvef Kópavogsbæjar.
Auglýsing birt11. febrúar 2019
Umsóknarfrestur16. apríl 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Furuskógur

Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Kennsla og deildarstjórn á mið- og elstastigi við Þjórsárskóla
Þjórsárskóli

Frístundaleiðbeinandi - frístundaheimilið Krakkakot
Frístundaheimilið Krakkakot

Leikskólakennari/ leiðbeinandi - Dalskóli leikskóli
Dalskóli

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara í tímavinnu eða hlutastarf
Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð

Kennari óskast í hönnun og smíði við Árbæjarskóla
Árbæjarskóli