Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Fönix félagsmiðstöð - Frístundaleiðbeinandi

Félagsmiðstöðin Fönix auglýsir eftir stöðu frístundaleiðbeinanda í 33% og 70% stöðu. Ráðið er í starfið frá og með 26.ágúst 2019.

Mikilvægt að viðkomandi hafi hæfni í mannlegum samskiptum og einlægan áhuga og ánægju af að vinna með börnum og unglingum. Frístundaleiðbeinandi hefur umsjón með og skipuleggur hópastarf og verkefni tengdum menningar, félags- og forvarnarstarfi félagsmiðstöðvarinnar. Hann vinnur í anda lýðræðis á starfsstaðnum og vinnur markvisst að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Diplómanám í uppeldis-eða tómstundafræðum æskileg, ekki skilyrði
  • Reynsla af störfum með börnum og unglingum æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í störfum
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð
  • Góð kunnátta í íslensku æskileg

Nánari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.

Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Tinna í síma 696-1627

Auglýsing birt7. maí 2019
Umsóknarfrestur27. maí 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar