

Kirkjuvörður, Digraneskirkja
Sóknarnefnd Digranessóknar auglýsir laust starf kirkjuvarðar. Um er að ræða krefjandi, skemmtilegt og metnaðarfullt framtíðarstarf.
Athuga skal að með umsókn veitir umsækjandi Digranes- og Hjallaprestakall heimild til að afla sakarvottorðs.
Með umsókn óskum við eftir ferilskrá, þar sem fram koma: persónulegar upplýsingar, menntun, starfsferill, meðmælendur og annað, sem umsækjendur vilja að komi fram. Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst 2023.
Umsóknir sendist rafrænt á netfangið: [email protected]
Æskilegast er að viðkomandi starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfniskröfur
Sóknarnefndin leitar að jákvæðum, snyrtilegum og samviskusömum kirkjuverði sem sýnir frumkvæði og áhuga í vinnunni. Einnig er mikilvægt að kirkjuvörður búi yfir góðri færni í mannlegum samskiptum, vera með ríka þjónustulund, og reynslu af því að vinna með öðrum í teymi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst m.a. dagleg umsjón með húsnæði sóknarinnar, utanumhald á útleigum, umsjón með viðburðum og innkaup. Sömuleiðis aðstoð við helgihald og safnaðarstarf, létt viðhaldsvinna og þrif. Þátttaka í samráðsfundum með öðru starfsfólki sóknarinnar. Einnig eru önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við presta og sóknarnefnd.
Auglýsing birt24. ágúst 2023
Umsóknarfrestur29. ágúst 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 82, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniLeiðtogahæfniMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölumaður
Garðlist ehf

Þjónustumeistari (50%)
Straumlind ehf

Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf - Hera sérhæfð líknarþjónusta
Landspítali

Nemi í endurskoðun
Gæðaendurskoðun slf

Þjónustufulltrúi
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Seyðisfirði
Mannauðs- og þjónustusvið

Sérfræðingur Þjónustumiðju
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri

Vanur bókari óskast
Tölvutek

Kvenkyns starfsmaður íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar
Fjarðabyggð