

Kennari í Varmárskóla
Varmárskóli í Mosfellsbæ óskar eftir kennara í tímabundið 60-100% starf vegna forfalla á yfirstandandi skólaári. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti byrjað fljótlega.
Í skólanum eru rúmlega 400 nemendur í 1.-6. bekk. Skólinn er Uppbyggingarskóli sem leggur mikla áherslu á þjálfun í félagsfærni og verið er að innleiða Leiðsagnarnám. Stutt er í fjölbreytta náttúru og lögð er áhersla á útikennslu. Í öllum árgöngum og námsgreinum er mikið samstarf um nám og kennslu og kennsla í íþróttum er mjög metnaðarfull. Starfsmannahópurinn er öflugur og samvinna og samhjálp eru einkennandi fyrir samskipti innan hópsins.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
- Leyfisbréf til kennslustarfa
- Reynsla sem nýtist í starfi
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð færni í samvinnu og samskiptum
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Góð íslenskukunnátta
Íslenska










