
Þroskaþjálfi óskast til starfa í Árbæjarskóla
Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru um 750 talsins og er skólinn safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru rúmlega 100 og er starfsandi mjög góður. Í skólanum er lögð áhersla á teymisvinnu kennara, starfsþróun og fjölbreytta kennsluhætti. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi.
- Vinna með nemendum í almennu skólaumhverfi og sérúrræði.
- Vinna að áætlunargerð í samstarfi við kennara, foreldra o.fl.
- Sjá um fjölbreytt mat s.s. færnimat og vitnisburð í samstarfi við kennara, foreldra o.fl.
- Útbúa kennslu- og/eða þjálfunargögn og fylgja eftir settum markmiðum.
- Samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Vinna að og fylgja eftir gerð einstaklingsnámskráa.
- Stýra teymisvinnu í kringum nemendur, bera ábyrgð á samvinnu við foreldra og fagaðila utan skólans í samvinnu við kennara.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Önnur afmörkuð verkefni innan skólans.
- Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi
- Menntun og hæfni til þjálfunar í grunnskóla.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Stundvísi og góð samskiptahæfni
- MJÖG GÓÐ íslenskukunnátta.
Íslenska










