

Kennari í textílmennt við Melaskóla
Melaskóli óskar eftir að ráða kennara í textílmennt í 100% stöðu skólaárið 2024-2025.
Melaskóli er rótgróinn grunnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum stunda um 500 nemendur nám í 1. til 7. bekk og lögð er áhersla á menntun og vellíðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góð samskipti við aðstandendur. Einkunnarorð skólans eru vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði.
Við leitum að einstaklingi með góða samskiptahæfni og þekkingu á skólastarfi. Einstaklingi sem hefur óbilandi trú á nemendum, áhuga á menntun þeirra og velferð og er tilbúinn að taka þátt í því að móta metnaðarfullt skólastarf.
Við skólann starfar öflugt teymi list- og verkgreinakennara þar sem lögð er áhersla á sköpunargleði og samvinnu.
Nánari lýsingu á námi og kennslu í textílmennt má finna í aðalnámskrá grunnskólanna https://adalnamskra.is/adalnamskra-grunnskola/kafli-21
- Annast kennslu nemenda, undirbúning og námsmat í samstarfi við annað starfsfólk skólans.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Leyfisbréf til kennslu
- Reynsla af kennslu æskileg ásamt óbilandi áhuga á að vinna með börnum
- Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakarvottorð
Íslenska










