Securitas
Securitas
Securitas

Jólagæsla á Akureyri

Býrð þú á Akureyri og ert á lausu um og yfir jólahátíðina?


Vegna aukinna umsvifa, erum við að leita að ábyrgu, traustu og vinnuglöðu fólki í gæslutengd verkefni fyrir komandi jólavertíð. Um er að ræða vaktavinnu sem miðast við opnunartíma verslana, sem er alla jafna milli 10:00 – 23:00. Um er að ræða hlutastarf með möguleika á áframhaldandi starfi að jólavertíð lokinni.

Viðkomandi þarf að vera ófeiminn, heiðarlegur, góður í mannlegum samskiptum og hjálpsamur viðskiptavinum okkar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Eftirlit með rýrnun í verslunum
  • Sýnileiki og forvarnargildi
  • Viðbrögð við boðum frá öryggishliði

Helstu hæfniskröfur:

  • Stundvísi
  • Snyrtimennska
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.

Við hvetjum öll kyn til þess að sækja um en skilyrði er að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.


Securitas er leiðandi fyrirtæki á öryggismarkaði sem kappkostar við að veita framúrskarandi þjónustu með það að markmiði að auka öryggi okkar viðskiptavina. Umsóknafrestur er til og með 26. nóvember nk. og skulu umsóknir berast í gegnum www.securitas.is

Auglýsing birt16. nóvember 2021
Umsóknarfrestur26. nóvember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar