
Securitas
Securitas er þjónustufyrirtæki og er starf okkar að auka öryggi viðskiptavina með gildin okkar að leiðarljósi sem eru árvekni, heiðarleiki og hjálpsemi.
Hjá okkur starfa um 500 manns, flestir starfa á höfuðborgarsvæðinu en Securitas heldur úti þremur útibúum, á Akureyri, Eskifirði og Reykjanesi. Starfsfólkið samanstendur af fjölbreyttum og öflugum hóp fólks með ýmiskonar bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og búum þannig til umhverfi sem okkur öllum líður vel í. Umhverfið okkar er allt í senn krefjandi og skemmtilegt og hér er góð liðsheild sem skilar sér í meiri árangri og líflegri menningu og leggjum við mikla áherslu á samvinnu og fagmennsku. Það er gaman í vinnunni, mikið hlegið og við hjálpumst öll að við að gera dag hvers annars betri.
Securitas leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem eflir það og styrkir. Við erum stolt af því hversu margir hafa fengið að vaxa og þróast í starfi hjá Securitas, en hér er möguleiki á öflugri starfsþróun og tækifæri til að fylgjast með því sem er að gerast í starfseminni á hverjum tíma.
Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum. Við tryggjum það að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kyns, þjóðernis, kynþáttar, kynhneigðar, trúar eða annarra þátta.

Jólagæsla
Vilt þú vera með okkur um jólin ?
Securitas leitar að jákvæðum og kraftmiklum einstaklingum sem eru tilbúin að leggja sitt af mörkum og taka að sér starf öryggisvarða yfir hátíðirnar.
Helstu verkefni öryggisvarða er að hafa eftirlit með rýrnun í verslunum, bregðast við boðum frá öryggishliðum og vera sýnileg/t/ur.
Ef þú...
-
Býrð yfir framúrskarandi þjónustulund.
-
Hefur snyrtimennsku í fyrirrúmi.
-
Býrð yfir góðri hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Réttir fram hjálparhönd.
...þá erum við að leita af þér !
Um er að ræða vaktavinnu sem miðast við opnunartíma verslana, sem er alla jafna milli 10:00-23:00.
Möguleiki er á áframhaldandi starfi að jólavertíð lokinni.
Umsóknarfrestur er til og með 8. desember næstkomandi. Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsóknum sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.
Við hvetjum öll kyn sem náð hafa 18 ára aldri með hreint sakavottorð að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ísleifur Árnason, deildarstjóri staðbundinnar gæslu í síma 580-7000.
Auglýsing birt24. nóvember 2023
Umsóknarfrestur8. desember 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Tunguháls 11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniMetnaðurSamviskusemiStundvísiÞjónustulundÞolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Svæðisstjóri - tímabundið starf
Skólamatur

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Öryggisvörður í spennandi verkefni á Reykjanesi
Securitas

Óska eftir aðstoðarkonu í fjölbreytt starf
NPA miðstöðin

Viltu vinna fyrir mikilvægasta fólkið?
Skólamatur

Starfsmaður við afgreiðslu / aðstoð
Sjúkraþjálfarinn ehf.

Öryggisvörður óskast á næturvaktir í Keflavík
Öryggismiðstöðin

Korpuskóli, Barðastöðum 2, óskar eftir sjúkraliða til starfa við skólann
Klettaskóli

Akstur & standsetningar LEAPMOTOR/JEEP/RAM/FIAT umboðið
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Aðstoð vantar á tannlæknastofu.
Tannlæknastofan Lindarbros

Uppsetningar
Titus