
Hrafnista
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og alls eru heimilin átta talsins í fimm sveitarfélögum. Þau eru Hrafnista Laugarási, Hraunvangi, Boðaþingi, Ísafold, Skógabæ, Sléttuvegi, Hlévangi og Nesvöllum.
Hjá Hrafnistu starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og með fjölbreyttan bakgrunn.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í Hrafnistuhópinn skaltu endilega senda inn umsókn,
Hlökkum til að heyra frá þér.

Íþróttafræðingur - Enduhæfingardeild Hrafnistu Sléttuvegi
Hrafnista Sléttuvegi óskar eftir að ráða íþróttafræðing á endurhæfingardeild heimilisins í 80-90% stöðu eða eftir samkomulagi. Á endurhæfingardeildinni starfa sjúkra- og iðjuþjálfar, íþróttafræðingar og aðstoðarfólk.
Á heimilinu búa 99 íbúar og eru þau hópurinn sem deildin þjónustar.
Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggur einstaklings- og hópaþjálfun íbúa í samvinnu við sjúkraþjálfara
- Framfylgir bæði einstaklings- og hópþjálfunaráætlunum íbúa
- Tekur þátt í skipulagningu heilsueflandi viðburða innan heimilisins
- Þátttaka í fagþróun
- Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem íþróttakennari/íþróttafræðingur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð yfirsýn og skipulagshæfni
- Faglegur metnaður
- Jákvæðni, sveigjanleiki og frumkvæði
- Áhugi á að starfa með öldruðum
Auglýsing birt10. júní 2026
Umsóknarfrestur21. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sléttuvegur 25-27 25R, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Íþróttafræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)

