Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Sjúkraþjálfari í endurhæfingarteymi - Hrafnista Laugarási

Hrafnista Laugarási óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara í nýja og öfluga endurhæfingardeild.Við erum að byggja upp framsækna og samþætta endurhæfingardeild og leitum að sjúkraþjálfara sem hefur áhuga á þróun, nýsköpun og þverfaglegri nálgun.Endurhæfingardeildin samanstendur af sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum, íþróttafræðingum og aðstoðarfólki og þjónustar íbúa og þjónustuþega dagendurhæfingar . Um er að ræða fjölbreytt, þverfaglegt og gefandi starf sem býður upp á mikinn sveigjanleika, öfluga liðsheild og tækifæri á að taka þátt í mótun og þróun nýrrar deildar. Nýr tækjasalur og góð aðstaða. Möguleiki á göngudeildarþjónustu (ambulant).
Um 80-100% starf er að ræða.

Hjá okkur færð þú:

  • fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á mótun og þróun þjónustu
  • sveigjanlegt og hvetjandi starfsumhverfi
  • öflugt þverfaglegt samstarf
  • vettvang til að þróa eigin styrkleika og fagmennsku
  • góða starfsaðstöðu og nýjan tækjasal
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining, endurhæfing, þjálfunaráætlanir og skráning
  • Skipulagning endurhæfingar íbúa og þjónustuþega dagendurhæfingar
  • Ráðgjöf og umsóknir á hjálpartækjum
  • Fræðsla fyrir þjónustuþega og starfsfólk
  • Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari frá Landlæknisembættinu
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð skipulagshæfni
  • Faglegur metnaður
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur14. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar