
Breiðablik
Breiðablik er eitt stærsta íþróttafélag landsins með 12 deildir/greinar ásamt hlaupahópi, íþróttaskóla yngstu barnanna og leikfimi eldri borgara. Félagið er staðsett í hjarta Kópavogs eða réttara sagt yst í Kópavogsdalnum.

Íþrótta- og verkefnastjóri Breiðabliks
Ungmennafélagið Breiðablik auglýsir eftir metnaðarfullum og skipulögðum einstakling í starf íþrótta- og verkefnastjóra. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem réttum aðila gefst kostur á að gegna lykilhlutverki í þróun og skipulagi á barna-, unglinga- og félagsstarfi Breiðabliks.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Tanja Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Breiðabliks, [email protected].
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 9. desember 2025 en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tryggja faglegt og framsækið íþróttastarf í Breiðablik.
- Efla samvinnu milli deilda og styðja við almenna starfsemi deilda, s.s. við styrkumsóknir og mótahald.
- Auka gæði þjálfunar með skipulagningu á fræðslu og framþróun þjálfara.
- Umsjón með skráningarkerfi félagsins.
- Samskipti við deildir Breiðabliks og ytri aðila (t.d. ÍSÍ, UMFÍ og sveitarfélagið).
- Úthlutun æfingatíma og skipulag frístundarútu.
- Skipulag íþróttahátíðar, sumarnámskeiða, íþróttaskóla og annarra viðburða.
- Aðstoð við fjáraflanir á vegum félagsins.
- Innri markaðssetning og upplýsingamiðlun til deilda, iðkenda, forráðamanna, sjálfboðaliða og félaga í Breiðablik.
- Skýrslugerð og úrvinnsla gagna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, s.s. íþróttafræði eða verkefnastjórnun.
- Þekking á starfsemi íþróttafélaga.
- Reynsla sem nýtist í starfi.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
- Færni til að setja fram upplýsingar í rituðu og töluðu máli.
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Auglýsing birt27. nóvember 2025
Umsóknarfrestur9. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalsmári 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari óskast í Krikaskóla
Krikaskóli

Stuðningsfulltrúi Smáraskóla
Smáraskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi við Flóaskóla
Flóaskóli

Leikskólakennari
Leikskólinn Goðheimar

Sérkennari/snemmtæk íhlutun
Leikskólinn Hof

Verkefnastjóri í vöruþróun
Kerecis

Leikskólakennari í leikskólanum Vinagerði
Leikskólinn Vinagerði

Sérkennsla og stuðningur Seljakot
Leikskólinn Seljakot

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljakot
Leikskólinn Seljakot

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Verkefnastjóri á umhverfissviði
Hafrannsóknarstofnun

Frístundaleiðbeinandi í Lindaskóla
Lindaskóli