Stjórnsýsla Mosfellsbæjar
Stjórnsýsla Mosfellsbæjar
Stjórnsýsla Mosfellsbæjar

Innkaupa- og rekstrarsérfræðingur hjá Mosfellsbæ

Mosfellsbær leitar að framsæknum, metnaðarfullum og talnaglöggum einstaklingi með brennandi áhuga á innkaupum og hagkvæmum rekstri.

Fjármála- og áhættustýringarsvið Mosfellsbæjar ber ábyrgð á fjármálastjórn bæjarins og meðal verkefna þess er fjárstýring, reikningshald og bókhald, yfirumsjón með fjárhagsáætlun, lánastýring, umsjón með gjaldskrám, innkaup og eftirlit með fjárhagstengdum samningum ásamt fjárhagslegu áhættumati.

Starf innkaupa- og rekstrarsérfræðings er nýtt og fjölbreytt starf í tengslum við breyttar áherslur í ört vaxandi sveitarfélagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Innkaupamál:
•    Ráðgjöf og aðstoð við svið og stofnanir vegna innkaupa- og útboðsmála 
•    Skipulagning og gerð innkaupaferla og eftirfylgni með innkaupareglum
•    Umsjón með rammasamningum
•    Yfirferð og ráðgjöf varðandi samninga um innkaup
•    Greining, samræming innkaupa og þarfagreiningar

Rekstrar- og fjárfestingaeftirlit:
•    Greining, ráðgjöf og upplýsingagjöf um rekstur og fjárfestingar
•    Aðstoð við undirbúning fjárhagsáætlunar 
•    Öflun og utanumhald gagna fyrir mælaborð og eftirfylgni með mælikvörðum

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði s.s. í viðskiptum, hagfræði eða verkfræði
•    Meistaragráða sem nýtist í starfi er kostur
•    Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur
•    Mjög góð tölvukunnátta og færni í Excel er skilyrði
•    Góð þekking og reynsla af Dynamics BC (NAV) er kostur
•    Samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun
•    Nákvæmni í vinnubrögðum og talnagleggni
•    Sjálfstæði, útsjónarsemi, skipulagshæfni og geta til að stýra verkefnum
•    Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg

Auglýsing birt5. apríl 2024
Umsóknarfrestur21. apríl 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁhættugreiningPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Innleiðing ferla
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar