

Innkaupa- og birgðastjóri
Innkaupa- og birgðastjóri í Flight Catering Operations
Icelandair leitar að metnaðarfullum innkaupa- og birgðastjóra í eitt stærsta framleiðslueldhús landsins. Starfsstöðin er á Keflavíkurflugvelli á fjölþjóðlegum vinnustað með yfir 150 starfsmenn. Starfsstöðin rekur nokkrar framleiðslulínur sem þjóna mismunandi viðskiptaeiningum.
Innkaupa- og birgðastjóri hefur yfirumsjón með innkaupaferlum og birgðastýringu ásamt því að leiða teymi sem sér um dagleg innkaup, móttöku, dreifingu, vörustýringu og vöruhýsingu. Við leitum að einstaklingi sem hefur mikla ánægju af því að vinna með fólki, brennandi áhuga á innkaupum og birgðastýringu, og er ekki hrædd(ur) við að fara nýjar leiðir.
Starfssvið:
- Hefur umsjón með reglubundnum innkaupum og birgðahaldi
- Annast framkvæmd útboða og gerð samninga um kaup á vörum og þjónustu
- Samskipti við birgja og aðra hagaðila innan fyrirtækisins
- Hagkvæmnis- og kostnaðar útreikningar
- Bestun á innkaupaferlum og ýmis umbótaverkefni sem tengjast aðfangakeðjunni
- Náið samstarf með framleiðslustjóra til að tryggja að öll innkaup samræmast við framleiðsluáætlun allra framleiðslulína
Hæfnikröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Brennandi áhugi á innkaupum og birgðastýringu, skilvirkni og hámörkun á nýtni.
- Reynsla af stjórnunarstarfi er kostur
- Framúrskarandi hæfni í verkefnastjórnun og vinna með tölur og gagnasöfn
- Mjög góð tölvukunnátta nauðsynleg. Kunnátta á okkar helsta tölvukerfi Axapta er mikill kostur
- Frumkvæði, metnaður og framúrskarandi samskiptahæfni
- Áhugi á straumlínustjórnun er mikill kostur
- Vilji til að vinna í síbreytilegu umhverfi og takast á við krefjandi og margbreytileg verkefni
- Mjög góð ensku- og íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar veita:
Einar Þór Einarsson, Manager, [email protected]
Svala Guðjónsdóttir, Office Manager, [email protected]











