
Icelandia
Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun.
Undir vörumerki Icelandia starfa:
Almenningsvagnar Kynnisferða
Dive.is
Flybus
Garðaklettur
Hópbifreiðar Kynnisferða
Icelandic Mountain Guides
Reykjavik Excursions
Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Almenningsvagnar Kynnisferða eiga 58 strætisvagna og sjá um viðhald og rekstur þeirra. Félagið sinnir akstri á 11 leiðum fyrir Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu.
Dive.is sérhæfir sig í köfunar- og snorklferðum í Silfru auk þess að vera fimm stjörnu PADI köfunarskóli.
Flybus býður upp á akstur á milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Garðaklettur á og sér um viðhald og rekstur á dráttarbílum ásamt því að sinna vörubílaakstri.
Hópbifreiðar Kynnisferða heldur utan um rekstur hópbifreiða af öllum stærðum.
Icelandic Mountain Guides hafa verið í fararbroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á sviði afþreyingar, göngu- og fjallaferðum og bjóða meðal annars upp á fjórhjólaferðir, jöklaferðir og styttri og lengri gönguferðir.
Reykjavik Excursions er eitt elsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og býður upp á dagsferðir í Bláa Lónið, Gullna hringinn, Jökulsárlón, norðurljósa ferðir og margt fleira.
Icelandia leitar að áhugasömu starfsfólki sem nýtir þekkingu og reynslu í daglegum störfum í jákvæðu starfsumhverfi.
Fyrirtækið er ISO 14001 vottað og er það markmið okkar að nálgast náttúruna með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Kínverskumælandi leiðsögumaður
Ferðaskrifstofa Icelandia leitar að jákvæðum, líflegum og kínverskumælandi leiðsögumanni til að taka þátt í spennandi og fjölbreyttu starfi leiðsögumanns í ferðum félagsins í vetur. Um er að ræða skemmtilega vinnu með gestum sem vilja sjá helstu náttúruundur Íslands.
English job description available by clicking "Sækja um".
Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita gestum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðafólki með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita faglega leiðsögn og skapa góðar minningar með gestum.
- Taka virkan þátt í undirbúningi ferða og vera sýnileg/ur og aðgengileg/ur á vettvangi.
- Tryggja öryggi gesta og starfa í samræmi við umhverfis-, öryggis- og gæðaviðmið fyrirtækisins.
- Sinna öðrum tilfallandi verkefnum eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Mjög góð kínversku- og enskukunnátta í töluðu máli er skilyrði – fleiri tungumál eru kostir.
- Reynsla af leiðsögn er nauðsynleg og menntun í leiðsögn er mikill kostur.
- D-ökuréttindi eru kostur.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og fagmennska í framkomu.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt snyrtimennsku og stundvísi.
- Jákvæðni, frumkvæði og þjónustulund.
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur22. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
KínverskaNauðsyn
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (6)

Rekstrarstjóri ferða
Icelandia

Travel consultant - Ferðaráðgjafi
Nonni Travel

Ökuleiðsögumenn: Day Tours & Northern Lights. Driver-Guides: Day Tours & Northern Lights Tours
BusTravel Iceland ehf.

Join Our Fantastic Team at Perlan!
Perlan

Mandarin Speaking Sales Associate KEF - Airport
66°North

Leiðsögumaður í norðurljósaferðum
Icelandia