Garðabær
Garðabær
Garðabær

Holtakot auglýsir eftir deildarstjóra

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir deildastjóra í 100% starfshlutfall.

Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar". Auk þess að vinnum við út frá Leikur að læra þar sem áherslan er á bóklegt nám í gengum leik.

Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.

Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
Reynsla af starfi á leikskólastigi
Góð íslenskukunnátta og ritfærni er skilyrði
Góð samskiptahæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
Sér um foreldrasamstarf á deildinni
Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
Auglýsing birt31. maí 2022
Umsóknarfrestur12. júlí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar