

Hólabrekkuskóli - mötuneyti
Skólamatur leitar að jákvæðu og duglegu starfsfólki í mötuneyti sitt í Hólabrekkuskóla sem er annarsvegar staðsettur í Korpuskóla í Grafarvogi og hinsvegar í Breiðholti.
Um er að ræða tímabundið starf til 5.júní 2025.
Vinnutíminn er frá kl.9:00 til 14:00 alla virka skóladaga.
Starfið felst í lokaeldun hádegismáltíða, undirbúningi og afgreiðslu máltíða og frágangi ásamt léttum þrifum i eldhúsi. Starfsmenn mötuneyta panta inn af pöntunarvef Skólamatar og senda inn dagsskýrslur.
Hæfniskröfur:
• Reynsla úr sambærilegu starfi æskileg.
• Menntun sem nýtist í starfi kostur.
• Góð íslenskukunnátta skilyrði.
• Jákvæðni, snyrtimennska, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð.
Umsækjendur eru beðnir að skila inn ferilskrá með upplýsingum um reynslu/menntun og fyrri störf.
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf 15. ágúst nk.
Fyrirspurnir um starfið berist á [email protected].
Skólamatur ehf. er fjölskylduvænt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á máltíðum fyrir mikilvægasta fólkið.
Íslenska
Enska










