Sportvellir ehf.
Sportvellir ehf.

Vaktstjóri afgreiðslu

Vaktstjóri ber ábyrgð á daglegri þjónustu og tryggir að þjónusta við viðskiptavini, hreinlæti og starfsumhverfi séu ávallt til fyrirmyndar. Starfið felur í sér umsjón með afgreiðslu, daglegum þrifum á ákveðnum svæðum í samvinnu við ræstiteymi Sporthússins ásamt leiðsögn starfsfólks á vakt. Unnið er 7-8 tíma á morgun-milli- og kvöldvöktum til skiptis og annan hvern laugardag 8-14. Flestar vaktir eru frá kl. 05:15-13:15- 12:00-20:00 og 16:00-23:00 mán.-fös. og 07:45-14:00 annan hvern laugardag. Stundvísi er mjög mikilvæg

Gott væri ef starfsmaður gæti hafið störf sem fyrst.

Ef spurningar vakna má senda á [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á daglegri þjónustu sem Sporthúsið veitir á sinni vakt, skipuleggur verkefni og forgangsraðar í samráði við rekstrarstjóra/framkvæmdastjóra.
  • Leiðbeinir, styður og fylgir eftir starfsfólki á vakt.
  • Tryggir að verklagsreglum, öryggisreglum og þjónustustöðlum sé fylgt.
  • Tekur á móti og þjálfar nýtt starfsfólk.
  • Heldur utan um samskipti við rekstrarstjóra og skilar upplýsingum um frávik, bilanir eða önnur atriði sem krefjast eftirfylgni.
  • Veitir framúrskarandi þjónustu og tekur vel á móti viðskiptavinum.
  • Leiðbeinir viðskiptavinum um þjónustu, reglur og aðstöðu.
  • Tekur á móti ábendingum og kvörtunum á faglegan og lausnamiðaðan hátt.
  • Tekur virkan þátt í daglegum þrifum stöðvarinnar.
  • Fylgist með að öll svæði séu hrein, snyrtileg og tilbúin fyrir viðskiptavini.
  • Fylgist með ástandi tækja og húsnæðis.
  • Tryggir að öryggisbúnaður og neyðarútgangar séu ávallt aðgengilegir og í lagi.
  • Opnar og lokar stöðinni samkvæmt verklagsreglum þegar við á.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustustörfum er skilyrði
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund.
  • Frumkvæði, ábyrgðarkennd og skipulagshæfni.
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og taka ákvarðanir.
  • Jákvætt viðmót og hæfni til að leiða með góðu fordæmi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
  • Almenn tölvukunnátta.
Fríðindi í starfi

Líkamsræktarkort

Makakort í líkamsræktina

afslátt hjá samstarfsaðila

Auglýsing birt22. október 2026
Umsóknarfrestur28. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Flugvallarbraut 701, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar