

Hlutastarf í verslun okkar í Skeifunni
Við hjá A4 óskum eftir að ráða kraftmikinn sölufulltrúa í hlutastarf í verslanir okkar í Skeifuna með áherslu á sölu og ráðgjöf til viðskiptavina. Bæði er vinnutími á virkum dögum frá kl. 16.00-20.00 og eins önnur hvor helgi.
Við leitum að ábyrgðarfullum einstaklingi til starfa sem getur hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni sölufulltrúa eru:
- Umsjón með viðeigandi svæði í verslun
- Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar.
- Áfyllingar, framstillingar, móttaka á vörum, afgreiðsla á kassa og önnur almenn verslunarstörf.
Kröfur um hæfni og reynslu:
- Reynsla af sölu- og verslunarstörfum.
- Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum.
- Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi.
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
- Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara.
- Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni.
Umsóknarfrestur er til og með 26. september 2021.
A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og húsgagna. A4 leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. A4 rekur einnig Legobúðina í Smáralind.











