
Húnabyggð
Húnabyggð er sveitarfélag með um 120-130 starfsmönnum þar af sjö á skrifstofu sveitarfélagsins.
Heimilisfræðikennari í Húnaskóla
Húnaskóli óskar eftir kennara í heimilisfræði, 69% staða frá 1. ágúst 2025. Húnaskóli er nýr framsækinn skóli í mótun með 180 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn leitast við að koma til móts við þarfir nemenda sinna á persónulegan og einstaklingsmiðaðan hátt. Lögð er áhersla á teymiskennslu. Gott samstarf er við nærsamfélagið svo sem íþróttafélögin og tónlistarskólann.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla í heimilisfræði á öllum stigum skólans.
- Umsjón með tækjum, stofu og innkaup
- Samstarf við aðra kennara og starfsfólk skólans.
- Foreldrasamstarf og önnur fagleg störf innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjendur verða að hafa leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla í grunnskóla æskileg.
- Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu.
- Reynsla og fagmenntun í heimilisfræði æskileg.
- Leitað er eftir einstaklingum sem hafa góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum.
- Áhersla er lögð á teymisvinnu og teymiskennslu, samþættingu námsgreina og þemabundin verkefni.
- Reynsla af samkennslu árganga og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvæg.
Farið er eftir Reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Auglýsing birt14. maí 2025
Umsóknarfrestur28. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Húnabraut 2A, 540 Blönduós
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Þroskaþjálfi eða einstaklingur með sambærilega menntun
Víkurskóli

Náms-og starfsráðgjafi óskast í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Umsjónarkennari á yngsta stigi/miðstigi
Víkurskóli

Kennari – ýmis fög
Víkurskóli

Kennari og/eða atferlisfræðingur í námsver Árbæjarskóla
Árbæjarskóli

Stærðfræðikennari óskast skólaárið 2025-2026
Árbæjarskóli

Kennarar í Auðarskóla skólaárið 2025-2026
Auðarskóli

Kvíslarskóli óskar eftir kennara
Kvíslarskóli

Umsjónarkennari á miðstigi
Smáraskóli

Náms-og starfsráðgjafi í 20% starf
Ásgarðsskóli, skóli í skýjunum

Skólastjóri Nesskóla
Fjarðabyggð

Grunnskólakennari - Hólabrekkuskóli
Hólabrekkuskóli