Garðabær
Garðabær
Garðabær

Heilsuleikskólann Holtakot - Sérkennsla og stuðningur

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir einstaklingum í 50-100% stöðu til að sinna stuðningi við börn með sérþarfir í samvinnu við sérkennslustjóra og deildarstjóra.

Við í Holtakoti leggjum áherslu á faglegt samstarf innan sérkennslunnar þar sem unnið er í teymisvinnu að stuðningi og kennslu barna með sérþarfir.

Holtakot er 4 deilda leikskóli og er hann staðsettur á Álftanesi/Garðabæ. Uppeldis og agastefna skólans er "Uppeldi til ábyrgðar". Við erum Heilsuleikskóli og leggjum mikið upp úr hreyfingu, listsköpun og hollu matarræði. Auk þess erum við "leikur að læra" skóli þar sem börn læra stafi, tölur og form í gegnum leikinn. Skólinn er hlýlegur og er lögð mikil áhersla á heimilislegt umhverfi og samskipti sem einkennast af virðingu fyrir börnum, starfsfólki og foreldrum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
Menntun á sviði sérkennslufræða, sálarfræði, þroskaþjálfunar eða önnur sambærileg menntun er æskileg.
Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Góð samskiptahæfni
Frumkvæð og sjálfstæð vinnubrögðum
Helstu verkefni og ábyrgð
Að sinna barni með sérþarfir
Að sjá um að einstaklingsnámskrá sé framfylgt
Að starfa í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn, deildarstjóra, sérkennslustjóra, aðra starfsmenn og fagaðila
Auglýsing birt22. september 2023
Umsóknarfrestur12. október 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Breiðumýri, 225 Breiðumýri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar