
Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum sautján aflsstöðvar á starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.

Hefurðu innri þjónustulund?
Við hjá Landsvirkjun leggjum okkur fram um að þjóna eigendum okkar, íslensku þjóðinni, með því að hámarka verðmæti þeirra endurnýjanlegu orkulinda sem okkur er trúað fyrir. Við leitum að lausnamiðuðum og þjónustuliprum einstaklingi til að ganga til liðs við okkur í deild Kjarna, sem styður við þessa vegferð að sjálfbærum heimi með því að veita skilvirka og persónulega þjónustu innan fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- úrlausn fjölbreyttra mála sem berast á þjónustuborð
- umsjón með sendingum innanlands og utan
- aðstoð vegna viðburða
- ýmis verkefni tengd húsnæði og bifreiðum
- önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- færni í skipulagningu og eftirfylgni verkefna
- góð tölvukunnátta
- góð íslensku- og enskukunnátta
- mjög góð samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Auglýsing birt3. október 2024
Umsóknarfrestur20. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget

Þjónusturáðgjafi í varahlutadeild
Bílaumboðið Askja

Sölu- og þjónusturáðgjafi á sölusviði
Skeljungur ehf

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Fagstjóri fasteigna
Grundarheimilin

Móttökuritari á heilsugæslu
Heilsugæslan Kirkjusandi

Þjónustufulltrúar hjá Símanum
Síminn

Aðstoðamaður á dýraspítala
Dýralæknar Sandhólaferju ehf.

Starfsmaður í ræstingar
Ívera hf.

Starfskraftur í Þjónustuver - Afleysing
Ó.Johnson & Kaaber

Starfsmaður í afgreiðslu.
Aðalskoðun hf.

Account Manager
Teitur