

Háskólakennari í aðferðum samtíma sviðslista við LHÍ
Laust er til umsóknar starf háskólakennara í aðferðum samtíma sviðslista við Sviðslistadeild Listaháskóla Íslands. Starfið felur í sér kennslu, umsjón og rannsóknir.
Um 50% starf er að ræða. Ráðið er í starfið frá 4. ágúst 2026.
Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir listræna fagmennsku og er í fararbroddi við þróun almennrar menntastefnu í listum. Listaháskólinn er hreyfiafl í síbreytilegum heimi og gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu sem eini háskólinn á fræðasviði lista á Íslandi.
Starfið er unnið í samræmi við reglur Listaháskólans um akademísk störf sem eru í gildi hverju sinni.
- Meistaragráða sem nýtist í starfi
- Háskólagráða í sviðslistum
- Kennslureynsla í sviðslistum er kostur
- Starfsreynsla á sviði samtíma sviðslista, svo sem samsköpunar- og/eða fjölbreyttra frásagnaraðferða er kostur
- Reynsla af rannsóknum í sviðslistum er kostur
- Þekking á sviðslistafræðum/leikhúsfræðum er kostur
- Samskiptahæfni, áreiðanleiki og skipulagfærni
- Afbragðs hæfni til að miðla efni í töluðu og rituðu máli
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Við ráðningu verður meðal annars litið til þess hvaða hæfileika ætla megi að umsækjandi hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til starfa innan skólans. Doktorsgráða er kostur. Frammistaða í viðtölum mun hafa mikið vægi við ákvörðun ráðningar. Að loknu viðtalsferli verður hæfi valinna umsækjenda metið samkvæmt reglum Listaháskóla Íslands um veitingu akademískra starfa, sjá nánar á lhi.is/log-og-reglur – umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglurnar við gerð umsóknar.
Íslenska
Enska
