

Deildarforseti sálfræðideildar Háskólans í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum, akademískum leiðtoga í starf deildarforseta sálfræðideildar háskólans. Deildarforseti fer með daglega stjórn deildarinnar og stýrir stefnumótun hennar. Deildarforseti heyrir undir rektor og sviðsforseta samfélagssviðs og situr jafnframt í framkvæmdaráði Háskólans í Reykjavík.
Helstu verkefni
- Mótun framtíðarsýnar og stefnu deildar, í samræmi við stefnu háskólans og annarra deilda
- Stjórnun deildarinnar og upplýsingagjöf til starfsfólks og nemenda
- Ábyrgð á stjórnskipulagi deildarinnar samkvæmt stefnu háskólans og að tryggja þátttöku akademísks starfsfólks og nemenda í stjórnun hennar
- Eftirfylgni með skipulags- og starfsreglum deildarinnar
- Gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlunar í samráði við sviðsforseta samfélagssviðs
- Ráðning fasts starfsfólks og mönnun námskeiða við deildina í samráði við sviðsforseta samfélagssviðs
- Tryggja að skipulag námsbrauta sé ætíð í samræmi við viðmið um æðri menntun og prófgráður
- Gerð kennsluskrár deildarinnar og regluleg endurskoðun og uppfærsla námsbrauta með hliðsjón af þörfum íslensks samfélags og atvinnulífs og þróun sambærilegs náms erlendis
- Ábyrgð á árlegu innra gæðamati deildarinnar ásamt skipulagi og þátttöku deildarinnar í ytra mati í samræmi við viðmið Gæðaráðs háskólanna
Hæfniskröfur
Leitað er að einstaklingi með eftirfarandi hæfni.
- Reynsla af leiðtogahlutverki í akademísku umhverfi
- Metnaður til að vinna að stefnumótun og leiða uppbyggingu liðsheildar
- Yfirgripsmikil reynsla af rannsóknum og kennslu á háskólastigi
- Reynsla af alþjóðlegum vettvangi og öflugt tengslanet í faginu á alþjóðavísu
- Doktorspróf á sviði sálfræði eða í sambærilegri grein
- Góð færni í ensku, bæði í ræðu og riti. Íslenskukunnátta er kostur.
- Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Bryndís Björk Ásgeirsdóttir sviðsforseti samfélagssviðs ([email protected]) eða Ester Gústavsdóttir mannauðsstjóri ([email protected]). Fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Umsóknum skal skilað á á ráðningarvef Háskólans í Reykjavík eigi síðar en 15. maí 2026 ásamt ítarlegri ferilskrá, upplýsingum um ritrýndar birtingar, kynningarbréfi og að minnsta kosti þremur meðmælabréfum. Einnig skal fylgja sýn umsækjenda á þróun sálfræðideildar HR næstu fimm árin.
Enska
