Háskóli Íslands
Háskóli Íslands
Háskóli Íslands

Lektor í hagnýtri atferlisgreiningu

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í hagnýtri atferlisgreiningu við Háskóla Íslands. Starfið er í þverfaglegri námsleið við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði og við Sálfræðideild á Heilbrigðisvísindasviði, þar sem lögð er áhersla á börn með sérþarfir. Starfið heyrir formlega undir Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði þar sem starfsaðstaða lektorsins er.

Samkvæmt reglum Háskóla Íslands skiptast starfsskyldur kennara í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í námskeiðum á meistarastigi á sviði hagnýtrar atferlisgreiningar og leiðbeiningu í rannsóknarverkefnum nemenda.

  • Rannsóknir á sérsviði lektorsins.

  • Þátttaka í stjórnun, nefndarstarfi og þróun náms í hagnýtri atferlisgreiningu.

  • Umsjón með starfsþjálfun nemenda á vettvangi í samstarfi við fagaðila innan og utan háskólans.

  • Viðhald á vottun námsins.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Doktorspróf á sviði atferlisgreiningar eða skyldri grein, t.d. sálfræði með sérþekkingu á atferlisgreiningu.

  • Vottun sem klínískur atferlisfræðingur, t.d. frá SATÍS.

  • Kennslureynsla og leiðbeining lokaverkefna nemenda á háskólastigi er kostur.

  • Reynsla af rannsóknum með einliðasniði er æskileg.

  • Rannsóknavirkni, sem kemur m.a. fram í birtingum á ritrýndum vettvangi og reynsla af rannsóknasamstarfi eru æskileg.

  • Skýr framtíðarsýn um rannsóknir.

  • Reynsla af hagnýtri atferlisgreiningu í starfi með börnum er kostur.

  • Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti.

  • Góð samstarfsfærni og lipurð í mannlegum samskiptum.

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur29. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hagatorg 1, 107 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar