Djúpavogshöfn
Djúpavogshöfn
Djúpavogshöfn

Hafnarvörður

Um er að ræða 100% starf við Djúpavogshöfn. Vinnutími er óreglubundinn og fer eftir verkefnastöðu og í samkomulagi við starfskraft. Upphaf starfs er samkomulagsatriði en æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi 1. júlí næstkomandi.
Næsti yfirmaður er verkstjóri Þjónustumiðstöðvar á Djúpavogi.

Hafnarvörður annast almenna starfsemi hafnarinnar og þjónustu við viðskiptavini hennar. Hann vinnur að vigtun sjávarafla og skráningu upplýsinga um löndun og annað sem við á. Hann vinnur að eftirliti með hafnarsvæðum, umferð um þau og umgengni og vinnur við og hefur umsjón með viðhaldi hafnarmannvirkja og búnaði hafnarinnar. Hann vinnur að öryggismálum hafnarinnar, mengunarvörnum og hafnarvernd.

Starfskraftur tilheyrir þjónustumiðstöð Múlaþings á Djúpavogi og sinnir einnig verkefnum þar eftir þörfum og starfsfólk þar geta komið til starfa á höfninni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta við viðskiptavini hafnarinnar s.s. móttaka skipa og eftirlit með þeim við bryggjur. 
  • Afgreiðsla vatns og rafmagns, sorphirða frá skipum, vigtun ofl.  
  • Eftirlit og umsjón með skipakomum, vöruflutningum og öðru því sem um höfnina fer og skráning þess. 
  • Stjórn á umferð skipa við höfnina og ákvörðun um legustað þeirra, færsla innan hafnar, skráning því viðkomandi og tilkynningar og varsla þeirra. 
  • Aðstoðar yfirhafnarvörð við að hafnarmannvirki uppfylli kröfur um öryggismál hafna og viðhald öryggisbúnaðar   
  • Sér um að halda hafnarmannvirkjum hreinum og snyrtilegum. 
  • Vinnur að viðhaldi hafnarmannvirkja ásamt verkstjóra þjónustumiðstöðvar og starfsfólki á framkvæmdasviði.  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hafnsöguréttindi og skipsstjórnarréttindi er kostur 
  • Hafngæslumannsréttindi og/eða verndarfulltrúi í hafnarvernd er kostur 
  • Vigtarréttindi er kostur  
  • Vinnuvélaréttindi æskileg 
  • Bílpróf 
  • Mikil samskipta- og samstarfshæfni. 
  • Góð almenn tölvukunnátta. 
  • Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð. 
  • Rík þjónustulund og góð framkoma.  
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í máli og ritun. 
Auglýsing birt13. mars 2026
Umsóknarfrestur29. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Víkurland 2, 765 Djúpivogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar