
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Gjaldkeri í reikningshaldi
Gjaldkeri er starfsmaður reikningshalds en undir deildina heyrir bókhald og innheimta bæjarins. Meðal helstu verkefna er greiðsla reikninga, sem og greiðsla launa, styrkja og framlaga. Auk þess reikningagerð (fyrir allar stofnanir), álagning gjalda (fasteignagjöld, gatnagerðargjöld og lóðaleiga) og innheimta þeirra.
Reikningshald tilheyrir skrifstofu áhættu- og fjárstýringar en þar starfa um 20 starfsmenn við bókhald, innheimtu, uppgjör, áætlunargerð, rekstrareftirlit og fleira, auk ýmis konar greiningar- og rekstrartengdra verkefna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sér um greiðslu reikninga bæjarins og undirstofnana hans, greiðslu launa til starfsfólks bæjarins og launatengdra gjalda ásamt greiðslu styrkja og framlaga
- Sér um reikningagerð fyrir stofnanir bæjarins vegna veittrar þjónustu. Annast innheimtu þessara gjalda og heldur utan um vanskil þeirra á hverjum tíma og upplýsir svið og stofnanir um vanskil mánaðarlega
- Semur við gjaldendur um uppgjör vanskila í samræmi við innheimtureglur og fylgir eftir samningum
- Annast alla almenna upplýsingagjöf varðandi álagningu gjalda, reikningaforsendur og útreikning þeirra ásamt réttindum og skyldum greiðenda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf
- Nám til viðbótar stúdentsprófi sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af gjaldkerastörfum
- Reynsla af bókhaldskerfum, t.a.m. NAV/BC
- Mjög góð tölvuþekking, þar á meðal Teams og Office 365
- Nákvæmni, skipulagshæfni og talnagleggni
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
36 klukkustunda vinnuvika.
Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur3. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Skrifstofustjóri
Stekkjaskóli

Innkaupafulltrúi
Dynjandi ehf

Þjónustufulltrúi
Fura ehf.

Þjónustufulltrúi - Tæknideild
Fastus

Leitum að öflugum bókara til liðs við okkur
Six Rivers Iceland ehf.

Sölufulltrúi Akureyri
Tengir hf.

Framkvæmdastjóri Skautasambands Íslands
Skautasamband Íslands

Gjaldkeri í fjármáladeild 66°Norður
66°North

Þjónustufulltrúi - sumarstarf
N1

Sala, bókanir og umsýsla hópa - Ferðaþjónusta
GoNorth

Sumarstarf á skrifstofu Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH)
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

Þjónustufulltrúi í þjónustuver Garðabæjar
Garðabær