
Storm hótelrekstur ehf.
Keahótel ehf er eitt af stærstu hótelfélögum landsins og rekur 8 hótel, sex hótel í Reykjavík : Hótel Borg, Apotek Hótel, Sand Hotel, Skuggi Hótel, Storm Hótel, Reykjavík Lights Hótel, eitt á Akureyri : Hótel Kea og Hótel Kötlu við Vík. Hótelin eru búin samtals 726 herbergjum og þjónusta ferðamenn, innlenda sem erlenda, allt árið um kring.
Keahótel ehf er spennandi vinnustaður þar sem starfar samheldinn hópur starfsfólks með fjölbreyttan bakgrunn. Við leggjum áherslu á metnað, hæfni og frumkvæði með það að leiðarljósi að skapa eftirsóknarvert og skilvirkt vinnuumhverfi. Aðalskrifstofa fyrirtækisins er á Akureyri og söluskrifstofa í Reykjavík.

Gestamóttökustjóri á Storm Hótel
Keahótel leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga í starf gestamóttökustjóra á Storm Hótel í Reykjavík. Starfið felur í sér yfirumsjón með daglegum verkefnum í gestamóttöku ásamt daglegum rekstri í samvinnu við hótelstjóra.
Keahótel leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga í starf gestamóttökustjóra á Storm Hótel í Reykjavík.
Við leitum að öflugum og drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund og skipulagshæfileika til að ganga í lið með okkur og veita gestum framúrskarandi þjónustu.
Hótel Storm er staðsett í Þórunnartúni 4 í Reykjavík og er hluti af Keahótel hótelkeðjunni. Hótelið er fallegt 93ja herbergja hótel með morgunverðarsal og bar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með gestamóttöku og starfsfólki í samvinnu við hótelstjóra
- Þjónustu- og gæðaeftirlit
- Yfirumsjón með bókunum, samskipti við ferðaskrifstofur og gesti
- Yfirumsjón á bar
- Skipulagning á komu gesta
- Mönnun vakta og þjálfun starfsmanna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af hótelstörfum nauðsynleg
- Reynsla á barrekstri er kostur
- Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra starfsmenn til árangurs, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
- Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Þórunnartún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)

Gestgjafi þjónustu og upplifunar/Guest Experience Host
Laugarás Lagoon

Tjaldverðir Akureyri/ Campwarden Akureyri
Hamrar, útilífsmiðstöð skáta Akureyri

Bílstjóri/Driver Into the Glacier
Into the Glacier

Guide at Mega Zipline Iceland (for summer 2026)
Mega Zipline Iceland

Operations Manager – Tindasel
Tindasel - The Farm

We are hiring - Various positions within our Rooms Department
The Reykjavik EDITION