Reykjavík Lights Hótel
Reykjavík Lights Hótel
Reykjavík Lights Hótel

Gestamóttökustjóri á Reykjavík Lights Hótel

Keahótel leitar að öflugum og framsæknum leiðtoga í starf gestamóttökustjóra á Reykjavík Lights.

Við leitum að öflugum og drífandi einstaklingi með ríka þjónustulund og skipulagshæfileika til að ganga í lið með okkur og veita gestum framúrskarandi þjónustu.

Starfið felur í sér yfirumsjón með daglegum verkefnum í gestamóttöku ásamt daglegum rekstri í samvinnu við hótelstjóra.

Reykjavík Lights er staðsett að Suðurlandsbraut 12 og er hluti af Keahótel hótelkeðjunni. Hótelið er fallegt 105 herbergja hótel með morgunverðarsal og bar.

Umsóknarfrestur er til og með 14. júní.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með gestamóttöku og starfsfólki í samvinnu við hótelstjóra
  • Þjónustu og gæðaeftirlit
  • Yfirumsjón með bókunum, samskipti við ferðaskrifstofur og gesti
  • Skipulagning á komu gesta
  • Mönnun vakta og þjálfun starfsmanna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af hótelstörfum nauðsynleg
  • Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra starfsmenn til árangurs, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg
  • Góð almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur14. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.RáðningarPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar