
Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður er stærsta sveitarfélagið á Norðurlandi vestra. Í sveitarfélaginu er fjölbreytt atvinnulíf, afþreying og þjónusta.

Bókari
Vilt þú taka þátt í að tryggja traustar fjárhagsupplýsingar í samhentum hópi starfsmanna á stjórnsýslu- og fjármálasviði Skagafjarðar?
Við leitum að nákvæmum og lausnamiðuðum bókara til starfa á stjórnsýslu- og fjármálasviði Skagafjarðar. Um er að ræða lykilhlutverk í stoðþjónustu sveitarfélagsins þar sem áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skráning og bókun fjárhagsfærslna, reikninga og greiðslna
- Móttaka og úrvinnsla fylgiskjala
- Afstemmingar banka, viðskiptamanna og lánardrottna
- Undirbúningur gagna fyrir uppgjör
- Samantekt og miðlun fjárhagsupplýsinga til stjórnenda
- Samskipti við íbúa, fyrirtæki og innri aðila
- Þátttaka í umbótaverkefnum, rafrænum ferlum og innra eftirliti
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, viðurkenndur bókari er kostur
- Reynsla af bókhalds- og uppgjörsvinnu
- Góð almenn tölvufærni
- Góð færni í notkun Excel
- Þekking á Microsoft Buisness Central er kostur
- Tölugleggni, nákvæmni og metnaður í starfi
- Góð samskiptafærni og þjónustulund
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð færni í íslensku í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
- Frí farsímaáskrift
- Heilsueflingarstyrkur
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt28. maí 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Seyðisfirði
Mannauðs- og þjónustusvið

Sérfræðingur Þjónustumiðju
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Skrifstofu- og gæðastjóri
Raftákn

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Vanur bókari óskast
Tölvutek

Bókari og skrifstofufulltrúi
Akraborg ehf.

Bókhald / Fjármál
Mögnum

Áhafnavakt/Daily Crew Operations
Icelandair

Fjármála- og rekstrarstjóri
Dropp

Fjármálasérfræðingur
BYKO

Sérfræðingur í innheimtu og greiðslum
BYKO

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf