

Teymisstjóri á leyfasviði
Útlendingastofnun leitar að teymisstjóra til að leiða málsmeðferðarteymi á leyfasviði stofnunarinnar. Leyfasvið hefur það hlutverk að afgreiða umsóknir um dvalarleyfi á Íslandi og íslenskan ríkisborgararétt. Helstu verkefni teymisstjóra á leyfasviði eru dagleg stjórnun teymisins, að tryggja að stjórnsýsluákvarðanir séu faglegar, vandaðar og í samræmi við lög, stuðla að skilvirkri málsmeðferð, hvetja starfsfólk til umbóta og efla góðan liðsanda.
Teymisstjóri á leyfasviði þarf að búa yfir leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Teymisstjóri heyrir undir sviðsstjóra leyfasviðs Útlendingastofnunar.
Útlendingastofnun er vinnustaður þar sem lögð er áhersla á stafræna þróun og umbætur. Hjá stofnuninni starfar samhentur hópur rúmlega 100 starfsmanna á fjórum sviðum. Umfangsmesti þátturinn í starfsemi stofnunarinnar er útgáfa dvalarleyfa. Útlendingastofnun afgreiðir umsóknir um dvalarleyfi, hvort sem um er að ræða dvalarleyfi á grundvelli atvinnuþátttöku, fjölskyldusameiningar, námsvistar eða vistráðningar. Þá afgreiðir stofnunin einnig umsóknir um ríkisborgararétt og umsóknir um alþjóðlega vernd. Lögð er rík áhersla á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu, sveigjanlegan vinnutíma og kost á fjarvinnu. Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er miðað við 36 stunda vinnuviku hjá öllu starfsfólki.
- Dagleg stjórnun og skipulag teymisins
- Ráðgefandi hlutverk og stuðningur fyrir starfsfólk teymisins
- Að umsóknir og erindi séu afgreidd á faglegan og skilvirkan hátt í samræmi við lög og reglugerðir
- Að teymið starfi í samræmi við stefnur og markmið stofnunar
- Að verkferlar séu til staðar, þeim fylgt og uppfærðir
- Fræðsla starfsfólks og samstarfsaðila
- Að unnið sé að stöðugum umbótum innan teymissins
- BA gráða í lögfræði ásamt meistaragráðu í lögfræði eða embættispróf í lögfræði
- Farsæl reynsla af stjórnun með mannaforráðum er kostur
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Þekking og reynsla af útlendingamálum er kostur
- Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á stafrænum lausnum
- Skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
- Kunnátta í einu Norðurlandatungumáli
- Geta til að leiða umbótastarf
Íslenska










