

Gervigreindarsérfærðingur / AI Specialist
Travel Connect leitar að framsæknum sérfræðingi í gervigreind til að þróa
nýstárlegar lausnir sem bæta þjónustu og skilvirkni í starfsemi samstæðunnar. Við leitum
að einstaklingi sem hefur reynslu af gagnavinnslu og tæknilausnum, brennur fyrir nýsköpun
og á auðvelt með að vinna í nánu samstarfi við fjölbreytt teymi innan alþjóðlegrar
samsteypu.
Hlutverk
Sérfræðingur í gervigreind mun taka þátt í innleiðingu og þróun á lausnum sem nýta
gervigreind til að bæta þjónustu, auka skilvirkni og styðja við stefnumótun fyrirtækisins sem
og dótturfélaga. Starfið felur í sér að greina tækifæri til sjálfvirknivæðingar, þróa líkön og
útfæra snjallar lausnir sem skapa virðisauka fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila.
Sérfræðingurinn mun jafnframt vinna í nánu samstarfi við dótturfélög og aðrar deildir
fyrirtækisins til að tryggja að lausnirnar samræmist þörfum ólíkra rekstrareininga og styðji
við heildarstefnu samstæðunnar.
Sérfræðingur í gervigreind mun starfa á rekstrarsviði Travel Connect. Þar starfa 12 einstaklingar í ólíkum hlutverkum, allir með það að markmiði að styðja við sterkan, skilvirkan og framtíðarmiðaðan rekstur.
• Greina þarfir fyrirtækisins fyrir gervigreindarlausnir og þróa viðeigandi nálganir.
• Hanna, þróa og innleiða vélanáms- og gervigreindarlíkön sem nýtast í þjónustu og
rekstri.
• Nýta gervigreind og gagnadrifnar aðferðir til að bæta upplifun viðskiptavina og auka
skilvirkni í rekstri.
• Starfa þvert á teymi til að tryggja að gervigreindarlausnir styðji við markmið
fyrirtækisins.
• Fylgjast með þróun á sviði gervigreindar og leggja til nýjungar sem auka
samkeppnishæfni.
• Tryggja að allar lausnir uppfylli kröfur um persónuvernd, öryggi og siðferðileg viðmið.
• Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði, stærðfræði eða skyldum greinum er
kostur.
• Reynsla af þróun og innleiðingu gervigreindar- eða gagnalausna er kostur.
• Þekking á gagnavinnslu, tölfræði og forritun (t.d. Python, R eða sambærilegt) er
nauðsynleg.
• Færni í að vinna með gagnagrunnslausnir og skýjaumhverfi er kostur.
• Skilningur á ferðaþjónustu og helstu áskorunum í greininni er kostur.
• Greiningarhæfni, frumkvæði og hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á skýran
hátt er nauðsynleg.
• Góð samstarfs- og samskiptahæfni og löngun til að vinna í teymi er nauðsynleg.
-
Fjölskylduvænn vinnustaður með frábæru vinnuumhverfi
-
Lifandi starfsandi
-
Góður hádegismatur
-
Styttri vinnuvika
-
Skemmtilegt félagslíf
Enska
Íslenska










