

Geislafræðingur á Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands leitar að geislafræðingi til starfa í afleysingu vegna fæðingarorlofs.
Um er að ræða 100% afleysingu fyrir myndgreininguna á Selfossi.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Starfið felst í almennum röntgenrannsóknum og tölvusneiðmyndatökum.
-
Íslenskt starfsleyfi sem geislafræðingur.
-
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
Íslenska


