KS
KS

Gæðastjóri

Mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki óskar eftir að ráða gæðastjóra. Um er að ræða tímabundið starf fram á haustið 2024.

Í Mjólkursamlagi Kaupfélags Skagfirðinga eru framleiddir brauðostar, ferskir ostar, rifinn ostur, viðbit og vörur Vogabæjar. Einnig er félagið Íslenskar Mysuafurðir með starfsstöð innan samlagsins, en þar er unnið mysuprótein og ethanol.

Gæðastjóri er hluti af teymi innra eftirlits Mjólkursamlagsins og sér um rekstur gæðakerfis. Gæðastjóri kemur fram fyrir hönd Mjólkursamlagsins gagnvart úttektaraðilum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun og þekking á sviði gæðastjórnunar, matvælafræða eða önnur menntun er nýtist í starfi
Þekking og reynsla á framleiðsluferlum í matvælaiðnaði er æskileg
Samstarfs- og samskiptahæfni
Sjálfstæði í vinnubrögðum, metnaður og frumkvæði
Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Góð íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstur, þróun og viðhald gæðakerfis. Þar með talin úrvinnsla upplýsinga og lykiltalna til að meta árangur og virkni kerfisins
Framkvæmd innri úttekta, undirbúningur ytri úttekta og úrvinnsla
Viðhald, útgáfa og dreifing gæðahandbókar
Samskipti við eftirlitsaðila á matvælasviði
Tillögugerð varðandi fræðslu fyrir starfsfólk vegna gæðamála
Fræðsla og þjálfun starfsfólks tengd gæðastarfi
Eftirlit með heilbrigði og hreinlæti afurða og starfsstöðva
Auglýsing birt10. janúar 2023
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skagfirðingabraut 51, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar