Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Fulltrúi á háskólaskrifstofu - tímabundin staða

Háskólinn í Reykjavík leitar eftir að ráða fulltrúa í 100% starf, tímabundið til mars 2027. Starfið heyrir undir háskólaskrifstofu HR. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem verkefnin geta verið af ýmsum toga. Starfið hentar vel ný útskrifuðum. Gott væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

STARFSSVIÐ

  • Aðstoð og utanumhald um dagatal og tölvupósta fyrir rektor háskólans
  • Aðstoð og eftirfylgni með verkefnum rektors og stjórnenda
  • Umsjón og samþætting verkefna, funda , viðburða og ferða fyrir rektor og aðra stjórnendur
  • Samstarf við starfsfólk deilda og stoðdeildir háskólans
  • Ýmis tilfallandi verkefni

HÆFNISKRÖFUR

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að halda utan um mörg verkefni á sama tíma
  • Lausnamiðuð hugsun og rík þjónustulund
  • Frumkvæði og fagmennska í vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta jafnt í töluðu sem rituðu máli

Með öllum umsóknum skal fylgja ferilskrá, valkvætt er að láta kynningarbréf fylgja með.

Umsóknarfrestur er opin þar til hæfur umsækjandi hefur verið ráðinn.

Nánari upplýsingar veitir Ólöf Vígdís Ragnarsdóttir ([email protected]), skrifstofustjóri háskólaskrifstofu og mannauðsdeild HR ([email protected]). Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt1. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar