Lagaviti ehf.
Lagaviti ehf.
Lagaviti ehf.

Full Stack / AI forritari

Lagaviti er mjög öflug gervigreindarlausn sem beitir allra nýjustu gervigreindartækni á hverjum tíma – ekki bara cutting edge heldur hreinlega bleeding edge tækni. Þróun lausnarinnar felur í sér fjölmargar tæknilegar áskoranir sem hafa í mörgum tilvikum ekki verið leystar áður, auk þess sem lausnin hefur mjög jákvæð samfélagsleg áhrif.

Vegna áframhaldandi vaxtar leitum við nú að öflugum og metnaðarfullum Full Stack forritara til að ganga til liðs við þróunarteymi Lagavita.

Þú munt taka þátt í þróun kjarnakerfa Lagavita þar sem veflausnir, gervigreind og gagnavinnsla mætast. Við leitum að einstaklingi sem hefur sterkan tæknilegan grunn, hefur gaman af því að leysa flókin verkefni og vill vinna með nýjustu tækni við þróun lausna sem hafa raunveruleg áhrif.

Þú verður hluti af öflugu þróunarteymi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, samvinnu og stöðuga þróun. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni og tækifæri til að taka þátt í mótun lausna, arkitektúrs og tæknilegrar stefnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróa og viðhalda kjarnakerfum og veflausnum Lagavita
  • Hanna og þróa þjónustur og API
  • Þróa notendaviðmót og virkni í nánu samstarfi við aðra forritara
  • Samþætta gervigreindarlausnir og AI-workflows við hugbúnaðarkerfi
  • Þróa lausnir sem vinna með stór gagnasöfn og flókna upplýsingavinnslu
  • Taka þátt í hönnun, arkitektúr og áframhaldandi þróun tæknilausna
  • Vinna náið með DevOps, gagnasérfræðingum og öðrum meðlimum þróunarteymisins
  • Taka þátt í yfirferð kóða, prófunum og stöðugum umbótum á hugbúnaðinum
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem hefur sterkan tæknilegan grunn, nýtur þess að þróa hugbúnað og hefur áhuga á að læra og vaxa með öflugu teymi.

Æskilegt er að umsækjandi hafi:

  • Haldbæra reynslu af Full Stack þróun eða bakendaþróun
  • Góða færni í JavaScript/TypeScript og/eða Python
  • Reynslu af þróun veflausna og API
  • Þekkingu á SQL og helst einnig NoSQL gagnagrunnum
  • Góða þekkingu á Git og nútímalegu þróunarumhverfi
  • Getu til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
  • Metnað fyrir vönduðum hugbúnaði, öryggi og góðum þróunarvenjum
Kostur ef umsækjandi hefur:
  • Reynslu af React, Next.js eða sambærilegum framendaumhverfum
  • Reynslu af Node.js, Python eða sambærilegri bakendaþróun
  • Reynslu af samþættingu gervigreindarlausna og LLM API
  • Þekkingu á leitarkerfum, RAG eða vektorleit
  • Reynslu af Docker, GitHub Actions eða öðrum þróunarverkfærum
  • Áhuga á nýtingu gervigreindar við hugbúnaðarþróun
Við bjóðum:
  • Tækifæri til að taka þátt í þróun leiðandi gervigreindarlausnar sem hefur jákvæð samfélagsleg áhrif
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni þar sem hugbúnaðarþróun, gervigreind og gagnavinnsla fara saman
  • Tækifæri til að vinna með nýjustu (cutting edge og bleeding edge) gervigreindartækni
  • Náið samstarf við öflugt og metnaðarfullt þróunarteymi
  • Samkeppnishæf kjör og góða vinnuaðstöðu
  • Sveigjanlegt og nútímalegt starfsumhverfi
Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar um starfið veitir Jóhannes Eiríksson, framkvæmdastjóri ([email protected]).

Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn hið fyrsta, þar sem ráðið verður í starfið óháð umsóknarfresti.

Auglýsing birt10. júlí 2026
Umsóknarfrestur20. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Nýlendugata 14, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.App-forritunPathCreated with Sketch.BakendaforritunPathCreated with Sketch.DockerPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.gitPathCreated with Sketch.JavaScriptPathCreated with Sketch.Next.JSPathCreated with Sketch.NodeJSPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.ReactPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TypeScriptPathCreated with Sketch.Vefforritun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar