Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli

Frístundaleiðbeinandi í Hörðuvallaskóla

Hörðuvallaskóli var stofnaður árið 2006 og starfar undir einkunnarorðunum „það er gaman í skólanum“. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf með framangreind einkunnarorð að leiðarljósi. Skólinn einkennist af góðum starfsanda og vinalegu viðmóti. Skólinn er fyrir nemendur í 1.-7. árgangi.

Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf með börnum í 1.-4. bekk að skóladegi loknum, sem frístundaleiðbeinandi í Hörðuheimum. Í boði er hlutastarf.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Leiðbeina börnum í leik og starfi

·       Stuðlar að jákvæðum samskiptum

·       Gengur í tilfallandi verkefni innan frístundarheimilis

·       Starfar samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Reynsla af störfum með börnum æskileg

·       Færni í mannlegum samskiptum

·       Vera skipulagður, geta sýnt sjálfstæði, frumkvæði og fagleg vinnubrögð.

·       Stúdentspróf, framhaldsskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg.

·       Góð íslenskukunnátta er skilyrði

·       Viðkomandi sé orðinn 18 ára

Auglýsing birt9. október 2024
Umsóknarfrestur23. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Baugakór 38, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar