
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðinni Óðal
Óskað er eftir einstaklingum 18 ára og eldri í skemmtilegt og skapandi starf með börnum og ungmennum í félagsmiðstöðinni Óðal fyrir starfsárið 2025 - 2026.
Í Óðali er áhersla lögð á lýðræðisþáttöku barna og unglinga og að ná til þeirra unglinga sem þarfnast félagslegs stuðnings. Unnið er í opnu starfi, skipulagðri dagskrá, tímabundnum verkefnum, í klúbbum og sértæku hópastarfi.
Um er að ræða hlutastarf sem felur í sér uppbyggilegt félagsmiðstöðvastarf fyrir 10-16 ára börn og ungmenni.
Opnunartími félagsmiðstöðvarinnar er á virkum dögum milli 14:00-22:00 og er hann mismunandi á milli daga. Starfshlutfall er frá 20 - 60%, hentar því starfið vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðbeina börnum og ungmennum í leik og starfi.
- Aðstoð við skipulagningu á faglegu frístundastarfi fyrir 10-16 ára börn og unglinga.
- Stuðla að virðingu, jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum við börn og unglinga.
- Góð samvinna og samráð við börn, unglinga og samstarfsfólk.
- Góð samskipti og samstarf við foreldra og aðra sem koma að starfi Óðals.
- Undirbúningur og frágangur í upphafi og lok hvers dags.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi að vinna með börnum og unglingum
- Færni í samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Vera jákvæð fyrirmynd fyrir börn og unglinga.
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í félagsmiðstöðvarstarfi.
- Góð íslenskukunnátta.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.
Fríðindi í starfi
- Heilsustyrkur til starfsmanna
- Ýmis afsláttarkjör
Auglýsing birt7. júlí 2025
Umsóknarfrestur11. ágúst 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Gunnlaugsgata 8, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Kennari við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð

Umsjónaraðili frístundar
Egilsstaðaskóli

Leiðbeinandi á frístundaheimili í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Stuðningsfulltrúi í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla í ágúst
Arnarskóli

Stuðningsfulltrúi óskast
Helgafellsskóli

Deildarstjóri í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Urriðaholtsskóli auglýsir eftir starfsfólki í Frístund
Urriðaholtsskóli

Urriðaholtsskóli auglýsir eftir leikskólakennara á leikskólastigi
Urriðaholtsskóli

Urriðaholtsskóli auglýsir eftir leikskólasérkennara
Urriðaholtsskóli

Kennari – Leikskólinn Hlíðarendi
Hafnarfjarðarbær

Landakotsskóli auglýsir stöðu umsjónarkennara
Landakotsskóli