
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Frístundaleiðbeinandi í Borgarnesi
Okkur vantar manneskju í skemmtilegt og skapandi starf með börnum í frístund í Borgarnesi fyrir skólaárið 2022-2023.
Markhópur frístundar eru börn á aldrinum 6-9 ára.
Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er frá 12:45-16:00 alla virka daga.
Unnið er samkvæmt gæðaviðmiðum í frístundarstarfi og leggjum við mikið uppúr lýðræðisþáttöku barna, vinnum í opnu starfi, klúbbum og sértæku hópastarfi.
Umsækjandi verður að hafa náð 18 ára aldri.
Menntunar- og hæfniskröfur
Mikilvægt að hafa áhuga á að starfa með börnum
Sýna frumkvæði, gleði og sjálfstæði í starfi og hafa góða færni í mannlegum samskiptum.
Reynsla af starfi með börnum er kostur.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.
Góð íslenskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiðbeina börnum í leik og starfi
Aðstoð við skipulagningu á faglegu frístundarstarfi.
Samvinna og samráð við börn og annað samstarfsfólk.
Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundar.
Auglýsing birt21. september 2022
Umsóknarfrestur2. nóvember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Gunnlaugsgata 13, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (7)

Skóla- og frístundaliði í Skarðsel - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði í Drekasel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð - Stöðin (Stöðvarfjörður)
Fjarðabyggð

Frístund: frístundarleiðbeinandi
Dalvíkurbyggð

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Hellinn
Frístundamiðstöðin Miðberg

Leikskólinn Naustatjörn: starfsmaður í leikskóla
Akureyri

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði
Hjallastefnan