

Frístundaheimilið Bakkasel - Breiðholt
Frístundamiðstöðin Miðberg óskar eftir starfsfólki í frístundaheimilið Bakkasel veturinn 2022-2023
Skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar. Á frístundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur. Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur og eru þeir lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
Leiðbeina börnum í leik og starfi.
Umsjón og undirbúningur klúbbastarfs s.s. íþróttir, leikir, föndur o.fl.
Samráð og samvinna við börn og annað starfsfólk.
Samskipti og samstarf við foreldra.
Hæfniskröfur
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
Áhugi á að vinna með börnum
Frumkvæði og sjálfstæði.
Færni í samskiptum.
Í boði eru hlutastörf, 30% -50%, með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.











