
Frístundaheimili Árborgar óska eftir frístundaleiðbeinendum og stuðningsstarfsmönnum
Ef þú hefur áhuga á að vinna með börnum er þetta skemmtilegasta starf sem hægt er að hugsa sér. Starfið felur í sér mikla fjölbreytni, sköpun, klúbba/smiðjustörf, útiveru og mikla gleði.
Hjá frístundaheimilum Árborgar eru starfrækt fjögur frístundaheimili fyrir börn á aldrinum 6-10 ára.
Frístundaheimilin eru hluti af frístundaþjónustu Árborgar og starfa eftir einkunnarorðunum Fjölbreytileiki - Traust - Samvinna – Gleði.
Um er að ræða hlutastarf í 40-50% starfshlutfalli á frístundaheimili Árborgar frá og með 24. ágúst. Vinnutíminn er kl: 12:45-16:15.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Aðstoð við skipulagningu á faglegu frístundastarfi
- Leiðbeina börnum í leik og starfi
- Styðja við börn með sérþarfir
- Samskipti og samvinna við börn, starfsfólk og foreldra
- Áhugi og ánægja af starfi með börnum
- Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
- Færni í mannlegum samskiptum og samstarfi
- Frumkvæði og sköpunargleði
- Góð íslenskukunnátta æskileg
- Menntun sem nýtist í starfi æskileg
Starfið gæti hentað vel með skóla. Starfsfólk þarf að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.
Íslenska










