
Sundhöll og íþróttamiðstöð Seyðisfirði
Íþróttamiðstöð Seyðisfjarðar var formlega tekin í notkun 1. febrúar 1999. Í íþróttahúsinu er rúmgóður salur, en þar rúmast t.a.m. löglegur handboltavöllur, 5 badmintonvellir, 2 körfuboltavellir, 3 blakvellir og 5 bocciavellir. Einnig er fullbúinn tækjasalur til líkamsræktar, gufa, kalt kar og heitur pottur í húsinu.
Sundhöll Seyðisfjarðar var byggð árið 1948 og var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins. Hún var formlega opnuð 8. júlí 1948 og varð því 70 ára árið 2018. Sundlaugin er innilaug 12,5 x 7m, lítil en vinaleg, með útipotti, köldu kari og sauna.

Framtíðarstarf við íþróttamiðstöð
Leitað er að starfskrafti í íþróttamiðstöðina á Seyðisfirði. Um er að ræða hlutastarf sem unnið er á vöktum og aðra hverja helgi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Snyrtimennska, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
Góð málakunnátta s.s. íslenska, enska, þriðja tungumál kostur.
Reynsla er kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
Almenn þrif og annað sem til fellur.
Eftirlit og gæsla með gestum íþróttamiðstöðvar.
Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir íþróttakennslu.
Almenn afgreiðsla og uppgjör.
Allar almennar ræstingar.
Taka á móti og leysa úr/koma áleiðis öllum ábendingum sem berast frá viðskiptavinum.
Fylgist með samskiptum notenda og leysir úr ágreiningi.
Vinna gegn áreitni og ofbeldi s.s. í búningsklefum og vísar erfiðum málum í réttan farveg.
Auglýsing birt27. ágúst 2021
Umsóknarfrestur9. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurvegur 4, 710 Seyðisfjörður
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaSamviskusemiUppgjörÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Lagerstarfsmaður hjá MAN á Íslandi
Kraftur hf.

Mandarínmælandi sölufulltrúi / Mandarin Speaking Sales Representative
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Starfsfólk í verslun - Helgarstarf - Selfoss
ILVA ehf

Sölumaður í verslun
Dynjandi ehf

Umsjónarmaður bíla á Akureyri
Brimborg

Verslunarstjóri á þjónustustöð Olís í Garðabæ
Olís ehf.

Sölufulltrúar óskast í hlutastörf í verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR

Starfsmaður á lager
RJR ehf

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Sölu- og þjónusturáðgjafi - Verslun Akureyri
Sýn

Starfsmaður í Kjötdeild (hlutastarf) - Krónan Akureyri
Krónan

Lyfjafræðingur - Apótekarinn
Apótekarinn