
Olís ehf.
Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks, uppbyggileg samskipti og fagleg vinnubrögð. Markmið fyrirtækisins er að skapa öruggt og jákvætt starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til starfsþróunar og símenntunar. Jafnframt er lögð áhersla á gott viðmót, framúrskarandi þjónustu, jafnrétti og virðingu fyrir öllum starfsmönnum.

Verslunarstjóri á þjónustustöð Olís í Garðabæ
Garðabær, fullt starf
Við leitum að jákvæðum og drífandi leiðtoga í starf verslunarstjóra á þjónustustöð okkar í Garðabæ við Hafnarfjarðarveg sem leiðir samheldinn hóp starfsfólks, ber ábyrgð á daglegum rekstri stöðvarinnar og skapar góða upplifun fyrir viðskiptavini okkar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun og rekstur stöðvarinnar
- Mönnun, vaktaskipulag og þjálfun starfsfólks
- Þjónusta við viðskiptavini og umsjón með vöruframboði og framsetningu
- Birgðahald, pantanir og uppgjör
- Eftirfylgni með gæða, öryggis og þjónustuferlum Olís
- Að vera fyrirmynd og stuðningur við starfsfólkið og leysa úr málum sem upp koma
Menntunar- og hæfniskröfur
- hefur reynslu af verslunarstörfum, stjórnun eða rekstri
- býr yfir góðri færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- er sjálfstæður, skipulagður og úrræðagóður
- hefur gott vald á íslensku og getur bjargað sér á ensku
- er ábyrgur, samviskusamur og stundvís
Fríðindi í starfi
- Styrk til heilsueflingar
- Afslátt af eldsneyti og vörum hjá Olís
- Aðgang að velferðarþjónustu
- Fræðslu í gegnum Brunninn, fræðslukerfi Olís
Auglýsing birt3. nóvember 2026
Umsóknarfrestur10. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnarfjarðarv.Olís b 119810, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniLeiðtogahæfniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúar óskast í hlutastörf í verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR

Starfsmaður á lager
RJR ehf

Sölufulltrúar í Sportvörur
RJR ehf

Sölu- og þjónusturáðgjafi - Verslun Akureyri
Sýn

Starfsmaður í Kjötdeild (hlutastarf) - Krónan Akureyri
Krónan

Lyfjafræðingur - Apótekarinn
Apótekarinn

Lagerstarfsmaður hjá MAN á Íslandi
Kraftur hf.

Umsjónarmaður bíla á Akureyri
Brimborg

Tanntæknir- Aðstoðamaður tannlæknis
Tannlæknastofa Kópavogs

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

Jólavinna í Vínbúð á höfuðborgarsvæðinu
Vínbúðin

Sölumaður í verslun
Dynjandi ehf