Eimskip
Eimskip
Eimskip

Framtíðarstarf í vöruhúsaþjónustu í Dreifingarmiðstöð

Vöruhúsaþjónusta Eimskips í Reykjavík leitar að þjónustulipru, drífandi starfsfólki sem vinnur vel í teymi og sýnir virðingu í samskiptum. Við leitum að einstaklingum sem endurspegla gildi Eimskips: liðsheild, framsækni, áreiðanleiki og virðing.

Um er að ræða framtíðarstörf í dagvinnu alla virka daga frá klukkan 08:00-16:00.

Hjá Dreifingarmiðstöð Eimskips starfar öflugur og samhentur hópur fólks í fjölbreyttum störfum sem snúa að þjónustu og dreifingu á vörum. Mikil áhersla er lögð á þjálfun og öryggismál hjá Eimskip og nýtur starfsfólk okkar góðs af stöðugri fræðslu og stuðningi, sem tryggir að öll séu vel undirbúin til að takast á við fjölbreytt verkefni og áskoranir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vörumóttaka og vöruafgreiðsla
  • Losun og lestun flutningabíla
  • Bóka vörur í birgðakerfi
  • Samskipti og upplýsingamiðlun vegna vörusendinga
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsreynsla á sviði vöruhúsaþjónustu er kostur
  • Lyftararéttindi (J) er kostur
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð færni í íslensku og/eða ensku
  • Góð þjónustulund, heiðarleiki og vönduð vinnubrögð
  • Frumkvæði, stundvísi og góð framkoma 
Fríðindi í starfi
  • Heitur matur í hádeginu, fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi.
  • Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur orlofshús um allt land
  • Heilsu- og hamingjupakki sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.
Auglýsing birt16. júlí 2026
Umsóknarfrestur4. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Grunnfærni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Grunnfærni
Staðsetning
Klettagarðar 15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LyftaraprófPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar